Fimbulfrost á Hellu

Nú er hart í ári hér í sýslu. Ískaldur norðanvindur blæs hingað frá Norðurskauti og þrjár sundlaugar sýslunnar lokaðar vegna kuldans.

Við Zorro fórum í hina hefðbundnu göngu í morgun. Hún hófst með morgunpissi Zorros úti á lóð. Hann var lengi að og eftir dágóða stund sá ég að afturendinn á honum fór að lyftast. Viti menn, pissið botnfraus samstundis og myndaði ísstólpa undir Zorro.