Er í lagi með Evrópusambandið?

https://www.facebook.com/1033232165/videos/1294190907921578/  mama mmia party

Kjarninn

Jón Ragnar Björnsson

 9. mars 2022

Ég er ein­dreg­inn Evr­ópu­sam­bands­sinni og geri mér jafn­framt grein fyrir að ESB er ekki full­komið fyr­ir­bæri, frekar en önnur mann­anna verk.

Við erum frjáls og full­valda örþjóð. Við höfum því val um hvar við viljum vera í sam­fé­lagi þjóð­anna.

Viljum við standa ein, hlut­laus og óvarin í miðju Atl­ants­hafi, eða viljum við tengj­ast ein­hverjum blokkum í heim­in­um?

Megin blokk­irnar eru fimm: Kína, Rúss­land, Banda­rík­in, Evr­ópu­sam­bandið og Atl­ants­hafs­banda­lag­ið. Við höfum sem sagt úr sex mögu­leikum að velja:  

  • Ein og „hlut­laus“? Reynslan hefur sýnt að það virkar ekki, en býður hætt­unni heim.
  • Banda­lag við Kína? Hver er til í það?
  • Banda­lag við Rúss­land? Svari hver fyrir sig!
  • Banda­lag við USA? Þó nokkrar líkur eru á að Trump verði næsti for­set­i. 
  • Við erum full­gildir félagar í Nato, þar sem saman koma mörg Evr­ópu­lönd og Banda­rík­in. Hvað ger­ist með Nato ef Trump verður næsti for­set­i?  
  • Banda­lag við ESB? Skásti kost­ur­inn við þessar aðstæður er að ganga í Evr­ópu­sam­bandið við fyrsta tæki­færi. Banda­lagið er að þétta raðir sínar vegna utan­að­kom­andi ógnar og ofrík­is. Það var stofnað sem frið­ar­banda­lag, rétt eins og Nato.

Auglýsing

Atburðir und­an­farna daga hafa sýnt okkur svart á hvítu að sumir víla ekki fyrir sér að fara í stríð við frjálst og full­valda ríki. Hver verður næst? 

Nato er gott svo langt sem það nær. Vitað er að banda­lagið er ekki í neinu upp­á­haldi hjá Trump, lík­legum for­seta­fram­bjóð­anda í USA. Þá stendur eftir sam­taka og þétt banda­lag evr­ópskra þjóða – ESB.

Höf­undur er fæddur í lok ann­arrar heims­styrj­aldar og hefur brenn­andi áhuga á að fram­tíð afkom­enda sinna og allra ann­arra verði sem örugg­ust á þess­ari jörð.

All reactions:

52

Sigrún Jónsdóttir, Jóhanna Jónsdóttir and 50 others