Allt getur gerst á Hellu

No photo description available.

Varla fór veðurofsinn í gær framhjá nokkrum manni. Hús léku á reiðiskjálfi, lausamunir eins og bílar, kerrur og trambólín hurfu eins og dögg fyrir sólu og komu ekki aftur.

Hundurinn minn hann Zorro komst ekki út að pissa um stund. Svo gat hann ekki beðið lengur og ég hleypti honum út. Eins og við manninn mælt tókst hann á loft og hvarf á augabragði. Ég varð dapur við þessi tíðindi, settist niður og hugsaði mitt ráð. Ekki dygði að fara út að leita, því ég færi vísast sömu leið. Leið nú og beið og ekki linnti veðurofsanum. En skyndilega snérist vindur í hálfhring og fimm mínútum síðar lenti Zorro á sama stað og hann tókst á loft. Hann var ánægður að naga meðan ég reiknaði út hvert hann hafði farið. Mín niðurstaða var að hann hafi fokið til Vestmannaeyja. Það studdi útreikninga mína að hann var með þorsksporð í kjaftinum þegar hann lenti.